Fara í efni

Laus störf á HVE Stykkishólmi

07.02.2023
Fréttir

Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) auglýsir lausar stöður  í Stykkishólmi. Um er að ræða stöðu hjúkrunarfræðings, sjúkraliða/nema eða almenns starfsmanns, deildarstjóra í eldhúsi og starfsmanns í eldhúsi.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga á hjúkrunar og sjúkradeild í Stykkishólmi. Dag og kvöldvaktir, helgarvinna ásamt bakvöktum. Starfstímabil eftir samkomulagi hvort sem um er að ræða allt sumarið eða styttri vinnutarnir. Sjá nánar hér

Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar við umönnun á hjúkrunar- og sjúkradeild. Hjúkrunar- og sjúkradeildin eru ætlaðar fyrir einstaklinga í hjúkrunar og sjúkrarýmum. Sjá nánar hér.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi óskar eftir að ráða deildarstjóra í eldhúsi. Um er að ræða nýja stöðu við stofununina og vinnutími er dag- og helgarvinna. Sjá nánar hér.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands leitar að áreiðanlegum starfsmönnum til að starfa í eldhúsi í Stykkishólmi. Um er að ræða dag - og helgarvinnu. Starfshlutfall er umsemjanlegt, 40-80%. Sjá nánar hér.

Þá má kynna sér öll störf sem stofnuninn auglýsir eru laus til umsóknar hér.

HVE Stykkishólmi
Getum við bætt efni síðunnar?