Fara í efni

Laus til umsóknar staða skólastjóri grunnskóla og tónlistarskóla

22.02.2023
Fréttir Laus störf

Leitað er að leiðtoga með mikinn metnað fyrir menntun barna og unglinga sem hefur framsækna sýn á skólastarf og hlutverk stjórnendateymisins við skólana og samvinnu þess. Lögð er áhersla á öfluga skólaþróun, hvetjandi starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk og samstarf við aðila skólasamfélagsins.

Skólastjóri er yfirmaður skólanna, mótar og viðheldur staðblæ og menningu með tilstyrk starfsfólks og nemenda. Hann veitir faglega forystu og leiðir framsækið og skapandi skólastarf í samræmi við grunnskólalög, aðalnámskrá grunnskóla og tónlistarskóla, ásamt skólastefnu sveitarfélagsins 2022-2027.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg stjórnun samrekins grunn- og tónlistarskóla.
  • Leiða stjórnendateymi grunn- og tónlistarskóla.
  • Ábyrgð gagnvart bæjarstjórn á að skólastarf sé í samræmi við lög, reglugerðir og gildandi aðalnámsskrá og skólastefnu hverju sinni.
  • Ábyrgð á viðvarandi undirbúningi þróunar og stefnumörkunar.
  • Forysta um þróun og umbætur í skólastarfinu og stefnumótun.
  • Ábyrgð á mannauðsmálum.
  • Ábyrgð á skólanámskrá skólanna, árlegri starfsáætlun, rekstraráætlun og öðrum áætlunum um skólastarfið.
  • Skipulagning og stjórn skólaráðsfunda
 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Réttur til að nota starfsheitið kennari og reynsla af skólastarfi á grunnskólastigi eða í tónlistarskóla.
  • Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
  • Menntun í stjórnun eða sérhæfð hæfni skv. 5. gr. laga nr. 95/2019.
  • Reynsla og þekking þar sem sérstök áhersla er lögð á sérhæfða hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu er æskileg.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
  • Frumkvæði, fagmennska, skipulagshæfni og nákvæmni.
  • Skýr framtíðarsýn í skólamálum.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Getum við bætt efni síðunnar?