Lausar stöður í Leikskólanum í Stykkishólmi
Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar stöður:
- 100% stöðu deildarstjóra.
- 100% stöðu leikskólakennara.
- Tæplega 60% stöðu við ræstingar.
Í stöðu deildarstjóra og leikskólakennara er gerð krafa um leikskólakennaramenntun eða aðra sambærilega menntun.
Góð tölvu-og íslensku kunnátta og færni í samskiptum er nauðsynleg.
Betri vinnutími hefur verið innleiddur að fullu í leikskólanum. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa koma aðrar umsóknir til greina. Athugið að starfið hentar öllum kynjum. Stöðurnar eru lausar frá 10. ágúst 2026.
Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128 og 8664535.
Hægtr er að sækja um störfin á á íbúagáttinni Stykkishólms.
Umsóknarfrestur er til 11. maí 2026.
Öllum umsóknum verður svarað.