Fara í efni

Laust starf í eldhúsi í Höfðaborg

17.04.2026
Fréttir Laus störf

Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsir laust til umsóknar starf aðstoðarmanneskju í eldhúsi í Höfðaborg.

Starfshlutfall er 100% en um framtíðarstarf er að ræða.

Starfsstöðin er í Höfðaborg, Skólastíg 14, í Stykkishólmi.

Starfið felst í aðstoð við matráð eldhússins, þrifum og öðrum tilheyrandi verkefnum sem fylgja rekstri mötuneytis.

Í starfinu felst einnig að viðkomandi starfsmaður vinni aðra hverja helgi (laugardag og sunnudag).

Umsækjendur þurfa að hafa reynslu á sviði matreiðslu, búa yfir sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð og færni í mannlegum samskiptum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til 4. maí 2026. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Hægt er að sækja um störfin á íbúagátt Stykkishólms. Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnsteinn Logi Eggertsson unnsteinn@stykkisholmur.is

Höfðaborg
Getum við bætt efni síðunnar?