Leikja- og Sumarnámskeið 2026
Í sumar verður boðið upp á leikjanámskeið fyrir 1.-3. bekk og sumarnámskeið fyrir 4.-6. bekk.
Umsjónaraðilar eru Sunna Rós Arnarsdóttir fyrir 1.-3. bekk, Ragnar Ingi Sigurðsson (smíðanámskeið) og María Kúld (hreyfinámskeið) fyrir 4.-6. bekk.
Skáning á námskeiðin þarf að berast fyrir 5. júní.
Ekki er boðið upp á að kaupa staka daga heldur ber að greiða fyrir heilt námskeið sem stendur yfir eina viku í senn. Smelltu á hnappinn hér að neðan til að skrá barn á námskeið.
Leikjanámskeið
Leikjanámskeið standa frá 8. til 26. júní og eru í boði fyrir börn í 1. - 3. bekk (2017-2019).
Hvert námskeið er vika og kostar 9.500 kr. Veittur er systkinaafsláttur, 50% með öðru systkini og ef systkinin eru þrjú er aðeins greitt fyrir tvö börn.
Á leikjanámskeiðunum verður efniviðurinn sóttur í nærumhverfið. Áhersla verður lögð á útileiki og skapandi vinnu með börnunum. Á leikjanámskeiðinu verður farið í lautarferðir, fjöruferðir, hjólaferðir, gönguferðir, ratleiki, og ýmsa skemmtilega leiki. Nánari dagskrá fyrir hvert námskeið verður gefin út síðar og sent á foreldra fyrir hvert námskeið.
Sumarnámskeið
Sumarnámskeið standa frá 15. júní til 3. júlí og eru í boði fyrir börn í 4. - 6. bekk (2014-2016). Boðið verður uppá smíðanámskeið og hreyfinámskeið.
Hreyfinámskeiðin verða 15.-19. júní og 29. júni -3. júlí en smíðanámskeið 22.-26. júní. hvert námskeið kostar 11.500 kr. Veittur er systkinaafsláttur, 50% með öðru systkini og ef systkinin eru þrjú er aðeins greitt fyrir tvö börn.
Á hreyfinámskeiði er lögð áhersla á gleði, samvinnu og að uppgötva nýjar leiðir til að hreyfa sig við ólíkar aðstæður. Markmiðið er að efla sjálfstraust, forvitni og hjálpa hverjum og einum að finna sína styrkleika í hreyfingu og útivist.
Á smíðanámskeiði gefst þátttakendum færi á að smíða kofa, bekk eða annað sem viðkomandi hefur áhuga á. Nemendur mæta með hamar og sög með sér.
Hvar og hvenær?
Mæting er í Regnbogaland milli skóla og íþróttamiðsöðvar fyrir 1.-3. bekk og félagsmiðstöðina X-ið Skólastíg 11 fyrir 4.-6. bekk. Í boði fyrir 4.-6. bekk að mæta fyrst í Regnbogaland og og færa sig svo upp á Skólasíg 11 kl. 9. Regnbogaland opnar kl. 8:00 og X-ið Skólastíg 11 kl. 9:00. Námskeiðin munu byrja alla morgna í grenndinni svo þeir sem mæta seinna ættu að finna hópinn.
- Námskeiðin fyrir 1.-3. bekk eru frá kl. 8:00 – 12:00 mán.- fös.
- Námskeiðin fyrir 4.-6. bekk eru frá kl. 9:00 - 12:00 mán.- fös.
- Frjálst val á báðum námskeiðum frá kl. 8:00 - 9:00 við Regnbogaland og formleg dagskrá frá 9:00-12:00.
Gert er ráð fyrir að allir mæti með hollt og gott nesti fyrir kaffitíma og hafi með sér vatnsbrúsa og léttan bakpoka (gos, orkudrykkir og sælgæti er ekki leyfilegt). Mikilvægt að börnin séu klædd eftir veðri. Minnt er á sólarvörn.
Þá er vakin athygli á því að námskeiðin eru ekki gæsla heldur afþreying með upphafi og endi. Foreldrar eru hvattir til að merkja allt sem kemur inn á námskeiðin; nestisbox, töskur og föt.