Fara í efni

Lista- og menningarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

14.12.2023
Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í lista- og menningarsjóð Stykkishólms. Samkvæmt reglum um styrkveitingar er hlutverk sjóðsins meðal annars að:

  • Styðja og styrkja lista og menningarstarf í Stykkishólmi og hvetja til nýsköpunar á sviði lista og menningar er tengjast Stykkishólmi.
  • Styðja við útgáfustarfsemi er varðar sögu, menningu og atvinnuhætti bæjarins.
  • Styðja við varðveislu menningarminja.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu sveitarfélagsins, eða netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is, fyrir nýársdag og tekur stjórn lista- og menningarsjóðs ákvörðun 6. janúar 2023.
Umsóknir skulu vera skriflegar og undirritaðar, umsóknir sem berast í tölvupósti jafngilda skriflegri umsókn.

Hverri umsókn skal fylgja greinagerð um starfsemi viðkomandi félags og/eða það verkefni sem vinna skal.

Fyrir hönd lista- og menningarnefndar,
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
hrafnhildur@stykkisholmur.is

Getum við bætt efni síðunnar?