Litahlaup í Stykkishólmi
Föstudaginn 18. september verður Litahlaup Grunnskólans í Stykkishólmi haldið í fyrsta sinn. Dagurinn er fyrsti uppbrotsdagur skólaársins en undanfarin ár hefur verið skólahlaup á þessum degi, en nú í ár verður litahlaup haldið í fyrsta sinn.
Margir þekkja eflaust Color Run sem haldið hefur verið í Reykjavík og notið mikilla vinsælda. Litahlaup skólans er haldið að fyrirmynd Color Run en í hlaupinu verða fimm litastöðvar þar sem dufti í öllum regnboganslitum verður kastað yfir hlaupara.
Hlaupið verður ræst kl. 11:30 við Grunnskólann í Stykkishólmi eftir létta upphitun. Reiknað er með að hlaupinu ljúki svo um 12:30 á sama stað. Að hlaupi loknu verður nemendum boðið upp á hádegishressingu við skólann. Hringurinn er 1,6 km.
Foreldrar, forráðamenn og aðrir íbúar eru hvattir til að mæta, fylgjast með og hvetja krakkana áfram.
Litahlaup á vegum grunnskóla hafa verið haldin víða um land undanfarin ár og meðal annars í Grundarfirði. Þar í bæ hefur skapast skemmtileg menning í kringum hlaupið þegar íbúar á öllum aldri standa víðsvegar við hlaupaleiðina og hvetja nemendur áfram.
Kort af hlaupaleiðinni má sjá hér að neðan.
Foreldrafélag Grunnskólans í Stykkishólmi leggur sitt af mörkum til hlaupsins og hefur keypt allt litaduftið sem notað verður í hlaupinu.
Um litaduftið
Litaduftið sem notað verður kemur frá Kingdom of Colors og er sérstaklega framleitt fyrir litahlaup. Það er gert úr maíssterkju og litarefnum sem eru samþykkt til notkunar í matvælum og snyrtivörum. Duftið er prófað og vottað.
Duftið á að þrífast auðveldlega af húð og úr flestum fatnaði. Gott er að hrista mesta duftið úr fötunum áður en þau eru þvegin og þvo þau síðan með venjulegu þvottaefni. Þó er mælt með að mæta ekki í viðkvæmum eða dýrum fatnaði og skóm, þar sem litur getur setið lengur í ákveðnum efnum.
