Ljósmyndasýningin The Glacier Project opnar í þjóðgarðsmiðstöð
Í tilefni af alþjóðlegum degi jökla, sem er þann 21. mars ár hvert, opnar ljósmyndasýningin The Glacier Project þann 13. mars í þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi.
Alþjóðlegur dagur jökla er tileinkaður vitundarvakningu um mikilvægi jökla fyrir umhverfið, ferskvatnsbirgðir jarðar og áhrif loftslagsbreytinga á þá. Markmiðið með deginum er að hvetja einstaklinga, stjórnvöld og vísindasamfélagið til að grípa til aðgerða til að vernda þessa viðkvæmu náttúruauðlind.
Að sýningunni standa hollensku listamennirnir Merel Klomp og Elmar Janse með stofnendur listastúdíósins Encritre í Rotterdam. Þau munu sýna verk sín á meðan á listamannadvöl þeirra stendur hjá Arctic Canvas á Hellnum.
Flest verkin á sýningunni voru unnin á Íslandi, þar sem tvíeykið skrásetti bráðnandi ís, fléttað bræðsluvatn og síbreytilegt landslag með bæði kyrrmyndum og hreyfimyndum. Stærra verkefni þeirra nær einnig til ferða að jöklum í Frakklandi, Noregi og víðar.
Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi opnaði 24.mars 2023. Elja Kaffihús sér um rekstur veitingasölu innan Þjóðgarðsmiðstöðvar. Þar eru sæti fyrir 40 manns og opnunartími frá kl. 10:00-16:00. Þjóðgarðsmiðstöðin er öllum opin og þar tekur starfsfólk fagnandi á móti gestum.
Viðburður á facebook síðu þjóðgarðsins: https://fb.me/e/cKlOWYXhg
Vefur þjóðgarðsins: Ljósmyndasýning │The Glacier Project - Snæfellsjökulsþjóðgarður
Opnun: Föstudaginn 13. mars kl. 16:00.
Staðsetning: Þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi.