Lokun á Stykkishólmsvegi vegna malbikunar
Malbikun á Stykkishólmsvegi hefst í dag, þriðjudaginn 20. október. Gert er ráð fyrir að verkið standi yfir í dag og á morgun. Malbikað verður frá afleggjara að Fákaborg og út fyrir afleggjara að Snoppu. Ákveðið var að malbika báðar akgreinar samtímis og nýta veginn um Arnarborg og Nýrækt sem hjáleið.
Vegurinn lokar í dag en framkvæmdaraðilar vinna nú að því að koma upp umferðarstýringu um hjáleiðir á svæðinu í samræmi við kortið hér að neðan. Almenn hjáleið til að komast úr bænum liggur um Nýrækt og Arnarborg en þeir sem þurfa að komast að Hamraendum fara upp Fákaborg og reiðstíginn.
