Fara í efni

LÓN heldur jólatónleika í Stykkishólmskirkju

22.11.2023
Fréttir

Hljómsveitin LÓN með Valdimar Guðmundsson í fararbroddi verður ásamt söngkonunni Rakel með notalega jólatónleika í Stykkishólmskirkju sunnudaginn 3. desember næstkomandi. Tónleikarnir bera yfirskriftina Fimm mínútur í jól sem er einnig titill á plötu hljómsveitarinnar sem kom út fyrir síðustu jól. Platan inniheldur meðal annars lágstemmdar útgáfur af gömlum og góðum jólalögum sem allir ættu að þekkja.

Kirkjan opnar kl. 20:00, tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er miðaverð 5.900 kr.

Hlekkur á viðburðinn:https://fb.me/e/1t3yaKVE4

Hlekkur á miðasölu: https://app.glaze.is/t/Qm1CE06TAtk4D4vEN6PT

Getum við bætt efni síðunnar?