Matjurtargarðar við Heljarmýri
Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst bjóða íbúum að rækta kartöflur og grænmeti í matjurtargörðum við Heljarmýri í sumar.
Til að hægt sé að undirbúa svæðið og plægja garða eftir þörfum eru áhugasamir beðnir um að láta vita ef þeir hafa hug á að nýta sér garðana. Áhugasamir geta látið vita af sér með því að senda póst á stykkishomur@stykkisholmur.is eða hafa samband við Ráðhúsið í síma 433-8100 fyrir þriðjudaginn 5. maí.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag verða veittar þegar ljóst er hversu margir hyggjast nýta garðana.
Matjurtargörðunum er ætlað að gefa íbúum kost á að rækta eigin grænmeti og njóta útivistar í nærumhverfinu. Reitirnir verða undirbúnir af sveitarfélaginu, en ræktendur sjá sjálfir um niðursetningu, umhirðu og uppskeru.