Fara í efni

Meðmælasöfnun vegna framboða til sveitarstjórnarkosninga

13.03.2026
Fréttir Stjórnsýsla

Kjörstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is
Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is

Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.

Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðs tilkynningu. Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.

Hægt er að mæla með framboðum hér
Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is

Kjörstjórn

Getum við bætt efni síðunnar?