Niðurstaða kosninga í dreifbýlisráð
Gengið var til kosninga í dreifbýlisráð laugardaginn 7. nóvember síðastliðinn í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit. Kosningarrétt í kosningu til dreifbýlisráðs hafa íbúar innan sveitarfélagamarka Helgafellssveitar eins og þeim er lýst á sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014 og íbúar með búsetu í Ögri. Kjörgengur í dreifbýlisráð er hver sá sem hefur skráð lögheimili í þeim hluta sveitarfélagsins sem lýst er hér að ofan.
Í aðdraganda sameiningar Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar lagði samstarfsnefnd til að sett yrði á fót sérstakt dreifbýlisráð til tryggja áhrif íbúa í dreifbýli á stjórnsýslu sameinaðs sveitarfélags og koma til móts við áhyggjur íbúa svæðisins.
Dreifbýlisráð skal skipað annars vegar einum fulltrúa og öðrum til vara kjörnum af sveitarstjórn og skulu þeir vera aðalfulltrúar í sveitarstjórn og hins vegar tveimur fulltrúum og tveimur til vara kosnum í beinni kosningu af íbúum í dreifbýlinu.
Aðsetur kjörstjórnar var á kjörstað og hófst talning eftir að kjörstað hafði verið lokað. Til dreifbýlisráðs voru kjörnir eftirfarandi:
Aðalmenn
- Sigríður Sóldal Hólum
- Hinrik Hjartarson Lyngholti
Varamenn.
- Ásmundur Óskar Einarsson Hólum
- Álfgeir Egill Þór Marinósson Álfgeirsvöllum.