Notaleg kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms
Svæðisgarðurinn Snæfellsnes stóð, í samstarfi við sveitarfélagið, fyrir notalegri kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms þriðjudagskvöldið 9. júní síðastliðið. Boðið var uppá ljúffengan rabbabaradrykk með ölkelduvatni og lifandi tónlist.
Það voru frændurnir Bæring Nói Dagsson og Bæring Breiðfjörð Magnússon sem sáu um að skemmta sundlaugargestum með ljúfum tónum. Rúmlega 80 manns gerðu sér ferð í sundlaugina og hlustuðu á þessa ungu og efnilegu tónlistarmenn.
Viðburðurinn var styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn var hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.