Ný bæjarstjórn tekin til starfa
49. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms fór fram fimmtudaginn 4. júní síðastliðinn. Þetta var fyrsti fundur eftir sveitarstjórnarkosningar og því fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar. Á dagskrá fundar voru meðal annars hefðbundin mál í kjölfar kosninga.
Skipaðir voru nefndarmenn í skipulagsnefnd, fræðslunefnd, kjörstjórn og fulltrúar sveitarfélagsins í Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Þá var Björn Ásgeir Sumarliðason kjörinn forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs var kjörinn Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir.
Fundir bæjarstjórnar eru sendir út í beinni útsendingu á youtuberás sveitarfélagsins og eru einnig aðgengilegir þar eftir á. Fyrsti fundur bæjarráðs eftir sveitarstjórnarkosningar er áætlaður mánudaginn 16. júní og næsti bæjarstjórnarfundur miðvikudaginn 18. júní.
Myndina hér fyrir ofan tók Guðrún Svana Pétursdóttir að loknum fyrsta fundi nýrrar bæjartjórnar. Á myndinni eru, frá vinstri: Jakob Björgvin S. Jakobsson, bæjarstjóri, Björn Ásgeir Sumarliðason, forseti bæjarstjórnar (H), Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir (H), Mattías Arnar Þorgrímsson (H), Þórhildur Eyþórsdóttir (H), Sigurður Grétar Jónasson (Í), Rannveig Tenchi Ernudóttir(Í) og Kristján Hildibrandsson (Í).