Nýjar raðhúsaíbúðir Stólpa kynntar í Stykkishólmi
Tíu nýjar raðhúsaíbúðir Stólpa við Bauluvík 1 í Víkurhverfi voru kynntar gestum á sérstökum kynningarfundi Stólpa í gær, fimmtudaginn 29. október. Íbúðirnar eru um 45 fermetrar hver og bæta við framboð minni íbúða í Stykkishólmi.
Kynningin fór fram á Fosshótel Stykkishólmi og gafst boðsgestum jafnframt tækifæri til að skoða húsin. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, tók þátt í kynningunni ásamt fulltrúum Stólpa og samstarfsaðila. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri, ávarpaði gesti fyrir hönd bæjarstjórnar.
Íslensk hönnun og einingaframleiðsla
Verkefnið við Bauluvík 1 nær til tveggja fimm íbúða raðhúsa. Húsin eru hönnuð af Batteríinu arkitektum og framleidd fyrir Stólpa af KOMA Modular í Tékklandi. Skipavík í Stykkishólmi sá um undirstöður húsanna.
Á kynningunni í gær var fjallað um hönnun og útfærslu húsanna og möguleika einingalausna til að mæta húsnæðisþörf sveitarfélaga, leigufélaga og fyrirtækja. Áhersla verkefnisins er á vandaða hönnun, hagkvæmni og stuttan framkvæmdatíma.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarpaði viðstadda og fjallaði meðal annars um breytt viðhorf til einingahúsa. Hann sagði samfélagið í auknum mæli vera að taka þessum byggingarstíl í sátt og átta sig á því að slík hús væru ekki síðri kostur en aðrar byggingar.
Bæjarstjóri ávarpaði einnig viðstadda og þakkaði Stólpa fyrir frumkvæðið og fyrir að velja Stykkishólm sem vettvang fyrir uppbygginguna. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að fjölbreytt húsnæði væri í boði fyrir fólk á ólíkum æviskeiðum og með mismunandi þarfir.
„Við þurfum húsnæði af mismunandi stærðum, því þarfir fólks eru ólíkar. Rúmgott einbýlishús hentar sumum vel. Aðrir hafa meiri þörf fyrir minni íbúðir,“ sagði Jakob.
Uppbygging í Víkurhverfi
Í Víkurhverfi hafa nú risið 34 íbúðir, þar af tólf almennar leiguíbúðir á vegum Brákar íbúðafélags sem ætlaðar eru tekju- og eignaminni heimilum. Uppbyggingin fellur vel að stefnu sveitarfélagsins um aukið framboð og fjölbreyttari húsnæðiskosti.
Árið 2024 gerði sveitarfélagið samkomulag við ríkið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að skapa skilyrði fyrir byggingu um 60 íbúða á fimm árum. Þar er sérstök áhersla á hagkvæmar íbúðir og viðráðanlegan húsnæðiskostnað. Er uppbygging Stólpa í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag.
Upphaflegt deiliskipulag Víkurhverfis var samþykkt árið 2007 og hefur skipulag hverfisins síðan verið þróað áfram. Á síðustu árum hefur sveitarfélagið unnið að gatnagerð og lagnaframkvæmdum og gert lóðir byggingarhæfar. Bæjarstjóri minnti á að sá undirbúningur væri nauðsynleg forsenda húsbygginganna og þakkaði þeim sem hefðu komið að þróun og uppbyggingu hverfisins í gegnum árin.
Innviðir og þjónusta fylgi uppbyggingunni
Bæjarstjóri tengdi í ávarpi sínu húsnæðisuppbygginguna jafnframt við framkvæmdir og þróun þjónustu í sveitarfélaginu. Þá vísaði hann til samnings um þekkingarsetur við Breiðafjörð sem undirritaður var 22. október og þeirra tækifæra sem setrið getur skapað til menntunar og atvinnu í heimabyggð. Í því sambandi lagði hann áherslu á að húsnæðisframboð væri mikilvæg forsenda þess að fólk gæti nýtt þau tækifæri og fest rætur í sveitarfélaginu. Nýjar byggingarlausnir þyrftu að skila vönduðu húsnæði á kostnaði sem fólk réði við, hvort sem væri til leigu eða kaups.
„Við viljum að þeir sem eiga hér heima geti fundið húsnæði við sitt hæfi og að þeir sem vilja flytja hingað fái tækifæri til þess einnig,“ sagði Jakob.
Framkvæmdir ganga vel
Framkvæmdir á svæðinu ganga vel en unnið er nú að því að klæða húsin að utanverðu og klára minniháttarfrágang innandyra. Þá á einnig eftir að ganga frá lóð og bílaplani.


