Nýr söngkennari í Stykkishólmi
Tónlistarskóli Stykkishólms vekur athygli á því að Hólmarinn Friðrik S. Kristinsson er fluttur aftur heim og tekur nú við sem söngkennari tónlistarskólans.
Friðrik er lærður söngvari, söngkennari og kórstjóri. Lengst af hefur hann stjórnað og starfað hjá Karlakór Reykjavíkur þar sem hann mun eiga starfslok 1. janúar nk. eftir 38 farsæl ár sem söngstjóri kórsins.
Friðrik býður upp á fjölbreytta kennslu í bæði klassískum og rytmískum söng fyrir börn frá 9 ára aldri, unglinga og fullorðna.
Auk þess hefur Friðrik mikinn áhuga á að vinna með og þjálfa kórsöngvara og búa til litla sönghópa sem og stærri.
Skólinn hvetur alla sem hafa áhuga til að sækja um nám hér: