Fara í efni

Nýtt gervigras á sparkvellinum

22.05.2026
Fréttir Lífið í bænum

Síðustu daga hafa vaskir menn unnið að því að leggja nýtt gervigras á sparkvöllinn við Íþróttamiðstöð Stykkishólms. Verkinu er nú lokið og gera því knattspyrnuunnendur tekið gleði sína á ný og prófað nýja grasið.

Í nýja grasinu er ekkert svart kurl eins og í því gamla sem gerði mörgum lífið leitt með því að sverta föt og bolta. Nú er því um að gera að njóta verðursins og skella sér í fótbolta á sparkvellinum.

Nýtt gervigras á sparkvelli
Getum við bætt efni síðunnar?