Fara í efni

Opið fyrir skráningu í Vinnuskóla og Samfélagsflokk

14.05.2025
Fréttir

Sveitarfélagið Stykkishólmur býður ungmennum með lögheimili í sveitarfélaginu sumarvinnu í Vinnuskólanum og Samfélagsflokknum.

Vinnuskólinn

Opið er nú fyrir skráningar í vinnuskólann og Samfélagsflokkinn sumarið 2025. Vinnuskólinn er fyrir ungmenni fædd árin 2007, 2008, 2009, 2010, 2011 og 2012.

Hægt er að skrá sig í vinnuskólann á íbúagáttinni. Skráningablöð er einnig hægt að nálgast og skila til skólaritara GSS og í móttöku Ráðhússins að Hafnargötu 3. Skráningu skal skilað fyrir mánudaginn 2. júní 2025. Mikilvægt er að fylla skráningarformin út samviskusamlega.

Vinnuskólinn býður fyrst og fremst upp á hefðbundin umhirðustörf og að auki aðstoð á leikjanámskeiðum. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa ungmenni fyrir vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað og skapa hollt og uppbyggjandi vinnuumhverfi fyrir ungmenni. Lögð er áhersla á jákvæð samskipti, ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, vinnufélögum, yfirmönnum og íbúum. Einnig eru kynnt grundvallaratriði í vinnubrögðum og notkun verkfæra.

Unnið er alla virka daga mánudag – föstudag (nema sérstaklega sé samið um annað). Stjórnendur Vinnuskólans munu endurskoða vinnutíma og vinnutímabilið með hliðsjón af fjölda umsókna og verður tilkynnt eins fljótt og auðið er ef breytingar verða. Undanfarin ár hefur vinnutímabilið lengst. Stefnt er að eftirfarandi lágmarks vinnutíma:

Árgangar

Vinnutímabil

Vinnutími

2009 (10. bekkur)

16. júní - 27. júlí

7 klst. á dag í 6 vikur, frá 8:00-16:00

2010 (9. bekkur)

16. júní - 27. júlí

7 klst. á dag í 6 vikur, frá 8:00-16:00

2011 (8. bekkur)

16. júní - 27. júlí

4  klst á dag í 6 vikur, frá  8:00-12:00

2012 (7. bekkur)

16. júní - 27. júlí

4  klst. á dag í 6 vikur, frá 8:00-12:00

 

Haldinn verður kynningarfundur með umsækjendum áður en starfsemin hefst þar sem flokkstjórar eru kynntir, farið er yfir helstu verkefni sumarsins, skiptingu hópa og vinnu- og öryggisreglur.

Vinnuskólinn hefst mánudaginn 16. júni 2025, mæting við Þjónustumiðstöðina að Nesvegi 7, kl. 8:00 stundvíslega.

 

Samfélagsflokkurinn

Hægt er að sækja um í samfélagsflokkinn á íbúagáttinni. Umsóknarblöð er einnig hægt að nálgast í móttöku Ráðhússins að Hafnargötu 3. Skráningu skal skilað fyrir mánudaginn 2. júní 2024. Mikilvægt er að fylla skráningarformin út samviskusamlega. 

Samfélagsflokkurinn sérhæfir sig í viðhaldi á höfn, skógrækt og stígagerð. Samfélagsflokkurinn sinnir ekki hefðbundnum garðyrkjustörfum á borð við snyrtingu beða eða krökun. Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði og hafa áhuga á útiveru og því að læra handbragð við almenn útistörf.

Vinnutímabil er eftirfarandi er en umsækjendur geta einnig byrjað fyrr í Áhaldahúsi sé þess óskað.

Árgangar

Vinnutímabil

Vinnutími

2007 (18 ára)

10. júní - 15. ágúst

7 klst. á dag, frá 8:00-16:00

2008 (17 ára)

10. júní - 15. ágúst

7 klst. á dag, frá 8:00-16:00

2009 (10. bekkur)

10. júní - 15. ágúst

7 klst. á dag, frá 8:00-16:00

2010 (9. bekkur)

10. júní - 15. ágúst

7 klst. á dag, frá 8:00-16:00

Getum við bætt efni síðunnar?