Fara í efni

Opið fyrir skráningu í Vinnuskólann 2023

22.05.2023
Fréttir

Sveitarfélagið Stykkishólmur bíður ungmennum með lögheimili í sveitarfélaginu sumarvinnu í Vinnuskólanum.

Opið er nú fyrir skráningar í vinnuskólann sumarið 2023. Vinnuskólinn er fyrir ungmenni fædd árin 2006, 2007, 2008, 2009 og 2010.

Hægt er að skrá sig í vinnuskólann á íbúagáttinni. Skráningablöð er einnig hægt að nálgast og skila til skólaritara GSS og í móttöku Ráðhússins að Hafnargötu 3. Skráningu skal skilað, fyrir föstudaginn 2. júní 2023. Mikilvægt er að fylla skráningarformin út samviskusamlega.

Vinnuskólinn býður fyrst og fremst upp á hefðbundin umhirðustörf og að auki aðstoð á leikjanámskeiðum. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa ungmenni fyrir vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað og skapa hollt og uppbyggjandi vinnuumhverfi fyrir ungmenni. Lögð er áhersla á jákvæð samskipti, ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, vinnufélögum, yfirmönnum og íbúum. Einnig eru kynnt grundvallaratriði í vinnubrögðum og notkun verkfæra.

Vinnutími og launakjör

Unnið er alla virka daga mánudag – föstudag (nema sérstaklega sé samið um annað). Stjórnendur Vinnuskólans munu endurskoða vinnutíma og vinnutímabilið með hliðsjón af fjölda umsókna og verður tilkynnt eins fljótt og auðið er ef breytingar verða. Undanfarin á hefur vinnutímabilið lengst. Stefnt er að eftirfarandi lágmarks vinnutíma:

Árgangar

Laun kr/klst.

Vinnutímabil

Vinnutími

2005 (18 ára)

2.660.-

5. júní - 11. ágúst

7 klst. á dag í 10 vikur, 8:00-16:00

2006 (17 ára)

2.149.-

5. júní - 11. ágúst

7 klst. á dag í 10 vikur, 8:00-16:00

2007 (10. bekkur)

2.014.-

5. júní - 11. ágúst

7 klst. á dag í 10 vikur, 8:00-16:00

2008 (9. bekkur)

1.656.-

5. júní - 11. ágúst

7 klst. á dag í 10 vikur, 8:00-16:00

2009 (8. bekkur)

1.349.-

5. júní – 14. júlí

4 klst. á dag í 6 vikur, 8:00-12:00

2010 (7. bekkur)

1.063.-

5. júní - 14. júlí

4 klst. á dag í 6 vikur, 8:00-12:00

 

Haldinn verður kynningarfundur með umsækjendum áður en starfsemin hefst þar sem flokkstjórar eru kynntir, farið er yfir helstu verkefni sumarsins, skiptingu hópa og vinnu- og öryggisreglur.

Vinnuskólinn hefst mánudaginn 5. júni 2023, mæting við Þjónustumiðstöðina að Nesvegi 7, kl. 8:00 stundvíslega.

Starfsmenn vinnuskólans við störf í Nýrækt 2020
Getum við bætt efni síðunnar?