Opinn kynningar- og umræðufundur um árspassa í þjóðgarðinn
Má bjóða þér að taka þátt í að móta árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð?
Í framhaldi af málþinginu um gjaldskyldu á ferðamannastöðum sem Snæfellsjökulsþjóðgarður hélt í febrúar er boðað til opnar kynningar- og umræðufundaraðar um Snæfellsnes. Fundaröðin er í tengslum við RETURN verkefnið sem Rannsóknarmiðstöð ferðamála heldur utan um.
Hér gefst tækifæri til að hafa áhrif á þróun nýs árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð, eiga samtal um gjaldskylduna yfir léttum veitingum.
Fundarstaðir eru eftirfarandi:
- 19. maí kl. 13:00 - Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi
- 19. maí kl. 16:00 - Nesbrauð í Stykkishólmi
- 20. maí kl. 12:00 - Sögumiðstöðin í Grundafirði
- 21. maí kl. 15:00 - Þjóðgarðsmiðstöðin í Snæfellsbæ
Dagskrá:
- Hlédís Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðs Snæfellsnes opnar.
- Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs kynnir tillögur að árspassa í þjóðgarðinn.
- Guðrún Þóra Gunnarsdóttir og Johannes Welling frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála (RMF), segja frá Return-verkefninu sem fjallar um ferðamannaskatat og fjöld.
- Umræður.