Fara í efni

Opinn kynningarfundur um tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðis Skipavíkur

22.05.2023
Fréttir Skipulagsmál

Opinn kynningarfundur um tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðis Skipavíkur verður haldinn í Amtbókasafni Stykkishólms miðvikudaginn 24. maí kl. 17:00. 

Á fundinum gera Kristín Þorleifsdóttir, skipulagsfulltrúi og Bæring Bjarnar Jónsson, skipulagsráðgjafi, grein fyrir vinnu vegna deiliskipulags hafnarsvæðis við Skipavík. Að lokinni kynningu verður opið fyrir umræður og ábendingar. Fundarstjóri verður Hilmar Hallvarðsson, formaður skipulagsnefndar.

Þann 18. apríl sl. samþykkti bæjarstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið við Skipavík skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagsvæðið tekur til um 4,5 ha reits, sem í aðalskipulagi er að mestu skilgreindur sem hafnarsvæði. Helstu markmið deiliskipulagsins eru að skilgreina skynsamlega nýtingu núverandi innviða og framtíðarmöguleika til uppbyggingar á svæðinu. Auk skipulagsskilmála fyrir núverandi byggðar og óbyggðar lóðir eru settir fram skilmálar fyrir nýjar lóðir við Nesveg 25 og 14a. Á vinnslustigi tillögugerðarinnar voru lóðirnar Nesvegur 22a og 24 felldar utan deiliskipulagssvæðis vegna fyrirséðra áhrifa á aðliggjandi minja- og útivistarsvæði, sem til stendur að skipuleggja í kjölfar þessa deiliskipulags.

Deiliskipulagstillagan er aðgengileg á vef sveitarfélagsins og í móttöku ráðhússins að Hafnargötu 3, á opnunartíma kl. 10-15, til og með 9. júní 2023. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan ofangreinds frests teljast samþykkir henni.

Ábendingar og/eða athugasemdir skulu vera skriflegar og berast til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 9. júní 2023 í Ráðhús Stykkishólms eða á netfangið skipulag@stykkisholmur.is.

Smelltu hér til að kynna þér tillöguna

Hilmar Hallvarðsson stýrði síðasta opna fundi vegna málsins, í mars sl.
Getum við bætt efni síðunnar?