Fara í efni

Óskað eftir ábendingum og tillögum við gerð fjárhagsáætlunnar

19.11.2025
Fréttir

Vinna við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins stendur nú yfir og er íbúum gefin kostur á að skila inn ábendingum og tillögum vegna þessa og hafa með því móti tækifæri til að hafa áhrif á aðgerðir bæjarstjórnar.

Með því að opna fyrir ábendingar og tillögur vill sveitarfélagið stuðla að auknu íbúalýðræði. Áhugasamir aðilar sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2026, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 3. desember 2025. Hægt er að skila inn ábendingum á Íbúagátt Stykkishólms (undir "hlekkir") eða á netfangið stykkisholmur@stykkisholmur.is

Öllum tillögum og ábendingum er tekið fagnandi og verða lagðar fyrir bæjarráð/bæjarsjórn til að taka mið af við gerð fjárhagsáætlunnar.

Nú er tækifæri til að koma á framfæri ábendingum varðandi ný verkefni, nýjar fjárfestingar eða áhersluverkefni í starfsemi sveitarfélagsins, t.d. varðandi leikvelli, opin svæði, göngustíga, bæjarhátíðir, skipulagsmál, söfn, menningarviðburði, húsnæði og eignir sveitarfélagsins eða annað sem íbúar hafa skoðanir á.

Getum við bætt efni síðunnar?