Fara í efni

Óskað eftir sjónarmiðum íbúa vegna aðalskipulagsgerðar

10.04.2026
Fréttir

Samhliða skipulagslýsingu nýtt aðalskipulags var birt vefkönnun til íbúa annarsvegar og landeigenda/ábúenda hinsvegar í tenglum við vinnuna. Könnununum er ætlað að draga fram upplýsingar og sjónarmið um helstu viðfangsefni aðalskipulags. Áður var óskað eftir að svörum fyrir 7. apríl 2026 en svarfrestur hefur nú verið framlengdur til 20. apríl.

Íbúar sveitarfélagsins, landeigendur og ábúendur er hvattir til að svara könnununum. Ábendingar og svör verða tekin til umfjöllunar skipulagsnefndar í næstu áföngum skipulagsverkefnisins.

Aðalskipulagsvefur

Getum við bætt efni síðunnar?