Öskudagur 2026
Miðvikudaginn 18. febrúar verður öskudagurinn haldinn með hefðbundnu sniði hér í Hólminum. Öskudagsgangan verður á sínum stað en gengið verður frá Tónlistarskóla Stykkishólms kl. 14:00. Magnús Bæringsson og Hafþór Guðmundsson leiða gönguna og lofa miklu fjöri.
Seinni partinn verður skemmtun í íþróttahúsinu á vegum foreldrafélags Grunnskólans í Stykkishólmi. Tímanum er skipt svona:
- 16:30 - 17:30 - Leikskóli og 1.- 2. bekkur
- 17:30 - 18:30 - 3.-6. bekkur
- 18:30 - 19:30 - 7.-10. bekkur
Börn til og með 10 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Athygli er vakin á því að frítt er inn á skemmtunina.
Gott er að renna yfir gömlu góðu söngtextana fyrir gönguna og taka svo vel undir. Smelltu á hnappinn hér að neðan til að skoða textana.
