Fara í efni

Réttað í Arnarhólsrétt

16.09.2026
Fréttir

Nú þegar tekur að hausta fara sauðfjárbændur landsins að huga að fé sínu og smala niður af fjöllum. Smalamennskan og réttirnar eru fastur liður í haustinu og mikilvægur þáttur í íslenskri menningu.

Gengið verður til leitar í Arnarhólsrétt laugardaginn 19. september næstkomandi. Réttað verður sunnudaginn 20. september og hefst réttarhald kl. 11.00. Seinni leitir verða laugardaginn 3.október og réttað sama dag.

Réttirnar eru jafnan líflegur viðburður þar sem fólki gefst kostur á að fylgjast með þessum hefðbundnu hauststörfum. Í réttum er einnig tilvalið tækifæri til að hitta fólk, spjalla og njóta samverunnar í upphafi hausts. Íbúar eru hvattir til að gera sér ferð í Arnarhólsrétt og fylgjast með réttarstörfum sunnudaginn 20. september kl. 11:00. Kvenfélagið Björk verður með réttarkaffi í Félagsheimilinu Skildi.

Arnarhólsrétt
Getum við bætt efni síðunnar?