Fara í efni

Ríkisstjórn Íslands í Stykkishólmi

12.08.2025
Fréttir

Ríkisstjórn Íslands fundar í Stykkishólmi dagana 14.-15. ágúst og heldur sinn árlega sumarfund á Höfðaborg í Stykkishólmi. Meðal annars verður fundað með Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi en aðaláherslumál fundarins eru atvinnumál og mun sérstök umræða fara fram um fyrirhugaða atvinnustefnu.

Þá mun ríkisstjórnin eiga ýmis óformlegri samtöl en að loknum ríkisstjórnarfundi, um kl. 10:30 föstudaginn 15. ágúst, býður ríkisstjórnin félagsmönnum Aftanskins og öðru eldra fólki í sveitarfélaginu til kaffisamsætis á Höfðaborg. Þar gefst gestum tækifæri til að eiga samtal við forsætisráðherra og aðra ráðherra ríkisstjórnarinnar um málefni líðandi stundar.

Getum við bætt efni síðunnar?