Sameiginlegur fundur beggja framboðslista
Sameiginlegur framboðsfundur beggja lista sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í Stykkishólmi 2026 fer fram í sal Tónlistarskóla Stykkishólms fimmtudaginn 14. maí kl. 17:00.
Á fundinum ávarpa frambjóðendur viðstadda og taka svo við spurningum úr sal. Íbúar eru hvattir til að mæta og hlýða á frambjóðendur.
Fyrirspurnir skulu vera hnitmiðaðar og beint til lista, ekki frambjóðenda. Ekki er ætlast til að fyrirspyrjandi flytji ræður.