Samningur um frekari uppbyggingu í Víkurhverfi undirritaður
Mánudaginn 13. apríl sl. var ritað undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu í Víkurhverfi. Samkvæmt fyrirliggjandi áformum er gert er ráð fyrir að Skipavík ehf. komi til með að byggja upp 14-28 íbúðareiningar í nýjum hluta hverfisins vestur af Borgarbraut, en í gildandi deiliskipulagi er heimild til að byggja 21-32 íbúðir. Í áformum Skipavíkur er lagt til að byggja parhús, einbýli og raðhús. Gert er ráð fyrir að uppbyggingu ljúki innan átta ára fá gildistöku deiliskipulags en deiliskipulag skal hafa tekið gildi fyrir apríl 2027.
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti viljayfirlýsinguna á 45. fundi sínum en undir hana rituðu, fyrir hönd sveitarfélagsins, Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri, og fyrir hönd Skipavíkur ehf. Sævar Harðarson.
Sveitarfélagið auglýsti í ágústmánuði síðasta árs eftir áhugasömum aðilum til viðræðna um samstarf við skipulag og uppbyggingu íbúðarsvæðis vestan Borgarbrautar í Víkurhverfi í Stykkishólmi. Skipavík ehf. sóttist eftir eftir verkefninu og hefur í kjölfar kynnt fyrirætlanir sínar fyrir bæjarráði, bæjarstjórn og skipulagsnefnd.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Skipavík ehf. annast og bera kostnað af gatnagerð, fráveitu og uppsetningu ljósastaura á svæðinu, en sveitarfélagið annast meðal annars yfirborðsfrágang, malbikun og gangstéttar. Í stað þess verður ekki innheimt gatnagerðargjald vegna bygginga á svæðinu.
Viljayfirlýsingin kveður einnig á um tímasett skilyrði fyrir framgangi verkefnisins. Verði ekki lagt fram deiliskipulag innan tilskilins tíma eða uppbygging dragist um of getur yfirlýsingin fallið úr gildi og sveitarfélagið tekið yfir úthlutun lóða.
Næstu skref snúa því að vinnu við deiliskipulagsgerð fyrir svæðið.
Hér má sjá mynd af svæðinu sem um ræðir.