Fara í efni

Samtalsfundur vegna fjárhagsáætlunar

08.12.2023
Fréttir

Boðað er til samtalsfundar mánudaginn 11. desember um fjárhagsáætlun Stykkishólms fyrir tímabilið 2024-2027 þar sem bæjarstjóri mun í samtali við viðstadda gera grein fyrir markmiðum fjárhagsáætlunar og helstu áherslum.

Fundurinn fer fram í matsalnum á Höfðaborg, Skólastíg 14, og hefst kl. 17:00.

Allir hjartanlega velkomnir.

Auk bæjarráðs og bæjarstjórnar hafa fastanefndir sveitarfélagsins undanfarið fjallað um fjarhagsáætlun á fundum sínum. Eins og íbúar þekkja eru bæjarstjórnarfundir sendir út í beinni útsendingu á Youtuberás Stykkishólms og má þar fylgjast með umfjöllun bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir árin 2024-2027.

Getum við bætt efni síðunnar?