Fara í efni

Sátan hefst á fimmtudag

03.06.2026
Fréttir Lífið í bænum

Sátan, þriggja daga rokkhátíð  sem haldin er í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi,  fer fram dagana 4. - 6. júní. Hátíðin er árleg og var fyrst haldin í sumarið 2024, þetta er því í þriðja sinn sem hátíðin fer fram. Sátan leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval af fremstu rokkhljómsveitum Íslands í bland við úrvalssveitir frá erlendri grundu.

Tónleikar hefjast í íþróttamiðstöðinni kl. 16:00 dagana þrjá og standa fram yfir miðnætti. Óhætt er því að gera ráð fyrir blómlegu mannlífi í Stykkishólmi næstu daga en auk tónleika býður hátíðin gestum uppá málþing á Fosshótel Stykkishólmi, bingó og golfmót svo eitthvað sé nefnt. Meðal hljómsveita sem koma fram á hátíðinni í ár eru Power Paladin, Stripshow, Sign og Sólstafir.

Enn er hægt að fá miða á hátíðina á sátan.is.

Krakkarokk

Áhugasömum er bent á að í ár býður Sátan krökkum að koma og fylgjast með þegar Sólstafir hita upp laugardaginn 6. júní kl. 12:45 -13:45.  

Skálmöld spilaði á Sátunni í fyrra
Getum við bætt efni síðunnar?