Sjómannadagurinn í Stykkishólmi
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land sunnudaginn 7. júní síðastliðinn.
Fulltrúar björgunarsveitarinnar Berserkja lögðu blómsveig við minnisvarða týndra sjómann í kirkjugarðinum og séra Úrsúla Árnadóttir flutti hugleiðingu. Að því loknu var haldið að minnismerkinu á heimleið við höfnina þar sem einnig var lagður blómsveigur. Sigurður Páll Jónsson flutti ræði og sr. Úrsúla fór með blessunarorð.
Sjómannadagsmessa var í Stykkishólmskirkju þar sem sr. Úrsúla þjónaði fyrir altari í fjarveru sr. Hildu Maríu.