Sjónarmið íbúa um viðfangsefni nýs aðalskipulags
Samhliða kynningu verkefnislýsingar fyrir mótun nýs aðalskipulags var birt vefkönnun til íbúa um áskoranir og tækifæri í skipulagsmálum.
Hér er birt samantekt úr svörum íbúa.
Könnuninni var ætlað að fá fram hugmyndir og sjónarmið íbúa um viðfangsefni aðalskipulagsins. Ábendingar íbúa eru mikilvægur efniviður inn í næstu áfanga skipulagsverkefnisins.
Sveitarfélagið þakkar þátttakendum fyrir þeirra framlag og hvetur um leið landeigendur og ábúendur til að svara vefkönnun um stöðu og þróun landnotkunar á jörðum þeirra og landareignum.
Á meðan nýtt aðalskipulag er í mótun má hvenær sem er senda inn hugmyndir og sjónarmið. Þær sendist á netfangið skipulag@stykkisholmur.is.
Minnt er á sérstakan aðalskipulagsveg vegna vinnunar.