Starf í Höfðaborg
Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsir laust til umsóknar starf við þrif í Höfðaborg.
Starfshlutfall er 25% og um framtíðarstarf er að ræða.
Starfsstöðin er í Höfðaborg, Skólastíg 14, í Stykkishólmi.
Starfið felst í almennum þrifum í húsnæði Höfðaborgar, að eldhúshluta þess undanskildu, skv. fyrirliggjandi þrifaáætlun.
Umsækjendur þurfa hafa reynslu af störfum við ræstingar, búa yfir sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til 10. september 2026 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn skal berast á íbúagátt Stykkishólms eða send á netfangið stykkisholmur@stykkisholmur.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnsteinn Logi Eggertsson, netfang: unnsteinn@stykkisholmur.is