Fara í efni

Starf í íþróttamiðstöð Stykkishólms

06.07.2026
Fréttir Laus störf

Sveitarfélagið Stykkishólmur óskar eftir að ráða karl í starf í í Íþróttamiðstöð Stykkishólms. Um er að ræða framtíðarstarf í 100% vaktavinnu, unnið er á morgun- , kvöld- og helgarvöktum í samræmi við opnunartíma. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf í byrjun september 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afgreiðsla og þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
  • Klefa- og sundlaugargæsla, eftirfylgni með umgengnisreglum.
  • Almenn þrif og ræstingar innanhúss og á laugarsvæði.
  • Halda húsnæði og aðkomu að því snyrtilegu.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
  • Reynsla af þjónustustarfi er kostur.
  • Tölvukunnátta.
  • Æskilegt er að viðkomandi geti tjáð sig bæði á íslensku og ensku.
  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Stundvísi, snyrtimennska, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
  • Lámarksaldur umsækjanda er 18 ára.
  • Starfsfólk þarf að standast hæfnispróf skv. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum, sjá upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar um hæfnispróf starfsmanna sundlauga. Vinnuveitandi skipuleggur og greiðir fyrir hæfnispróf.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. Sveitarfélaga og Kjalar. Fyrirspurnir um launakjör sendist á netfang unnsteinn@stykkisholmur.is

Fyrirspurnir varðandi nánari upplýsingar um starfið sendist á netfang sund@stykkisholmur.is.

Hægt er að sækja um starfið á íbúagátt Stykkishólms.

Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2026. Öllum umsóknum verður svarað.

Sundlaug Stykkishólms
Getum við bætt efni síðunnar?