Fara í efni

Starfsfólk við leikjanámskeið

30.04.2026
Fréttir

Sveitarfélagið Stykkishólmur leitar eftir hressum og ábyrgum einstaklingum við aðstoð á leikjanámskeiði fyrir börn á aldrinum 6-9 ára.

Starfstímabil er frá 8. til 27. júní.

Hæfniskröfur

  • Viðkomandi þarf að vera góð fyrirmynd og sýna stundvísi og vinnusemi.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni
  • hafa gaman af því að vinna með börnum
  • Frumkvæði og þolinmæði
  • Hreint sakavottorð

Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.

Nánari upplýsingar veita Magnús Ingi Bæringsson, magnus@stykkisholmur.is og Sunna Rós Arnarsdóttir, sunna.ros@stykk.is

Getum við bætt efni síðunnar?