Fara í efni

Stóri plokkdagurinn 2024

26.04.2024
Fréttir Lífið í bænum

Sunnudaginn 28. apríl nk. verður Stóri plokkdagurinn haldinn hátíðlegur um land allt. Þá er fólk hvatt til að ganga um umhverfi sitt og tína upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til og liggur á víðavangi, á girðingum, í gróðri og í skurðum eftir veturinn.

Það eru samtökin Plokk á Íslandi sem standa að Stóra plokkdeginum. Dagurinn er hugsaður sem upphaf plokktímabilsins og sem vitundarvakning og hvatning til okkar allra um að huga að umhverfi okkar og neyslu. Íbúar eru hvattir til að láta til sín taka í og plokka í tilefni dagsins.

Góð ráð frá Plokk á Íslandi

  • Gott er að finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
  • Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
  • Klæða sig eftir aðstæðum.
  • Koma afrakstrinum á viðeigandi stað fyrir úrgang.
  • Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.
Getum við bætt efni síðunnar?