Fara í efni

Stóri plokkdagurinn í Stykkishólmi

24.04.2026
Fréttir

Stóri plokkdagurinn fer fram sunnudaginn 26. apríl 2026. Sveitarfélagið stendur fyrir plokkviðburði sem hefst kl. 11:00 við Kakkelovnsholt í Vík (við innkomuna í Víkurhverfi) á sunnudaginn kemur.

Í ár verður áhersla lög á að plokka í Vík, en þar hefur víða safnast rusl í skurðum og fjörunni. Sveitarfélagið útvegar poka en þeir sem eiga plokkstangir eru hvattir til að mæta með þær.

Að verki loknu verður duglegum plokkurum boðið uppá grillaðar pylsur. 

Getum við bætt efni síðunnar?