Styrktarbingó Lilju
Nemendafélag Fjölbrautaskóla Snæfellinga stendur fyrir bingó til styrktar Lilju Dögg, nemanda við FSN. En Lilja Dögg greindist með bráðahvítblæði í lok síðasta árs. Nemendur hafa undanfarið staðið í ströngu við að undirbúa bingóið og safna góðum styrkjum og hvetja því alla að mæta í dag, miðvikudaginn 25.febrúar kl. 17:30, og taka þátt í Styrktarbingó Lilju.
