Fara í efni

Sumarafleysing í Íþróttamiðstöð Stykkishólms

10.02.2026
Fréttir Laus störf

Sveitarfélagið Stykkishólmur óskar eftir að ráða tvo sundlaugarverði (karl og konu) til sumarafleysinga í íþróttamiðstöð Stykkishólms. Um er að ræða tímabundna 100% sumarafleysingu. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Starfssvið:

  • Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
  • Klefa- og baðvarsla
  • Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif.

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Tungumálakunnátta, íslenska og enska
  • Hreint sakavottorð

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. Sveitarfélaga og Kjalar. Fyrirspurnir um nánari upplýsingar sendist á netfang magnus@stykkisholmur.is.

Hægt er að sækja um starfið á íbúagátt Stykkishólms.

Umsóknarfrestur er til 31. mars 2026. Öllum umsóknum verður svarað.


Sjá einnig:

Laust starf í íþróttamiðstöð Stykkishólms

Getum við bætt efni síðunnar?