Fara í efni

Sumarnámskeið í Stykkishólmi

24.05.2023
Fréttir

Í sumar verður boðið upp á leikjanámskeið fyrir 1.-3. bekk og ævintýranámskeið fyrir 4.-7. bekk líkt og undanfarin ár. Á námskeiðunum er lögð áhersla á gleði og hreyfingu.
Umsjónaraðili leikjanámskeiðs fyrir 1.-3. bekk er Lilja Ýr Víglundsdóttir, sími 785-9878. Skráning í leikjanámskeið fyrir 1.-3. bekk er í netfangið lilja.yr@stykk.is.
Umsjónaraðili námskeiða fyrir 4.-7. bekk er Ragnar Ingi Sigurðsson, kennari og skylmingameistari, sími 820 0508. Skráning í námskeið hjá Ragnari er í netfangið ragnaringi@stykk.is

Námskeiðin hefjast mánudaginn 5. júní 2023.

Hér að neðan má sjá kynningarbæking fyrir sumarnámskeiðin sem gott er að kynna sér vel.

Frá leikjanámskeiði 2020
Getum við bætt efni síðunnar?