Fara í efni

Sumarstörf í Stykkishólmi

23.03.2026
Fréttir Laus störf

Vilt þú vinna úti í fallegu umhverfi og góðu veðri?

Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsir eftir kraftmiklu fólki í skemmtileg störf sumarið 2026.

Flokkstjórar vinnuskóla

Æskilegt er að umsækjendur fyrir flokkstjóra hafi:

  • Ríka þjónustulund
  • Góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og hafi frumkvæði
  • Góða hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og jákvæðni
  • Mikla ábyrgðartilfinningu
  • Ánægju af því að vinna með og leiðbeina ungmennum.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

Nánari upplýsingar um vinnuskólann

Vinnutími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga.

Vinnuskólinn verður auglýstur nánar þegar nær dregur sumri.

Aðstoð og stuðningur við vinnuskóla

Sveitarfélagið leitar einnig eftir stuðningsfulltrúum sem vinna með flokkstjórum og sinna stuðning við störf vinnuskólans.

Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði, vera hugmyndarík og skapandi, geta unnið sjálfstætt og hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, auk ánægju af að vinna með ungmennum.

Samfélagsflokkurinn

Sveitarfélagið leitar einnig eftir kraftmiklum og hraustum einstaklingum í nýtt verkefni, verkefnið er hugsað fyrir ungmenni úr 9. og 10. bekk grunnskóla. Samfélagsflokkurinn sérhæfir sig í viðhaldi á höfn, skógrækt og stígagerð. Samfélagsflokkurinn sinnir ekki hefðbundnum garðyrkjustörfum á borð við snyrtingu beða eða krökun.

Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði og hafa áhuga á útiveru og því að læra handbragð við almenn útistörf.

Starfstímabil er frá lok maí eða byrjun júní til síðari hluta ágústmánaðar. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 virka daga.

Starfsmenn í slátturgengi og græn störf

Starfið felst í slætti og umhirðu grænna svæða ásamt öðrum tilfallandi verkefnum í Þjónustumiðstöð.

Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði og hafa áhuga á útiveru og því að læra handbragð við umhirðu grænna svæða.

Starfstímabil er frá síðari hluta maímánaðar til síðari hluta ágústmánaðar. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 virka daga.

Aðstoð og stuðningur við sumarnámskeið

Sveitarfélagið leitar einnig eftir aðstoðarfólki sem styður umsjónaraðila við leikjanámskeið fyrir nemendur í 1.-3. bekk og ævintýranámskeið fyrir 4.-6. bekk. Einnig er leitað eftir stuðningsaðilum sem vinna með flokkstjórum og sinna stuðning við störf vinnuskólans.

Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði, vera hugmyndarík og skapandi, geta unnið sjálfstætt og hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, auk ánægju af að vinna með börnum.

Um öll störfin

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kjalar. leitað er eftir sakavottorði fyrir þau sem vinna störf á vinnustöðum með börnum, í samræmi við heimildir um slíkt í lögum.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðni Sumarliðason í síma 892-1189. Upplýsingar um launakjör veitir Unnsteinn Logi Eggertsson, launafulltrúi, í síma 433-8100, en einnig má beina fyrirspurnum á netfangið unnsteinn@stykkisholmur.is Hægt er að sækja um störfin á íbúagátt Stykkishólms.

Ekkert jafnast á við lyktina af nýslegnu grasi
Getum við bætt efni síðunnar?