Fara í efni

Sveitarfélagið gefur börnum sólmyrkvagleraugu

10.06.2026
Fréttir

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.

Sveitarfélagið Stykkishólmur afhenti á dögunum leik- og grunnskóla sérstök sólmyrkvagleraugu í tilefni af almyrkvanum sem verður miðvikudaginn 12. ágúst nk.

Með gleraugunum vill sveitarfélagið tryggja að öll börn í sveitarfélaginu geti fylgst með þessum einstaka náttúruatburði á öruggan hátt. Skólarnir hafa nú þegar komið gleraugunum til nemenda sinna.

Á vefnum solmyrkvi.is má finna allar helstu upplýsingar um almyrkvann, þar á meðal sérstakar upplýsingar um öryggi augna. Íbúar eru hvattir til að kynna sér málið og tyggja þannig sem besta upplifun af þessum einstaka atburði.

Almyrkvi á sólu verður 12. ágúst nk.
Getum við bætt efni síðunnar?