Fara í efni

Sveitarfélagið Stykkishólmur takmarkar hækkanir almennra gjaldskráa við 2,5% árið 2027

05.10.2026
Fréttir

Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti á fundi sínum 1. október að hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélagsins verði að hámarki 2,5% árið 2027. Verður það lagt til grundvallar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar sem lágu til afgreiðslu á fundinum.

Bæjarstjórn telur mikilvægt að sveitarfélagið taki þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum, verja kaupmátt heimilanna og stuðla að því að gildandi kjarasamningar haldi. Við fjárhagsáætlunarvinnuna verða jafnframt metin áhrif gjaldskráa á barnafjölskyldur og fólks í viðkvæmri stöðu.

Árangur í þessum efnum er háður samstilltum aðgerðum ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. Bæjarstjórn skorar því á ríkisvaldið og stofnanir þess að sýna sambærilegt aðhald við ákvörðun gjaldskráa og endurskoða fyrirhugaðar hækkanir gjalda og álaga sem hafa bein áhrif á heimilin.

Stykkishólmur
Getum við bætt efni síðunnar?