Sveitarfélög við Breiðafjörð mótmæla ákvörðun innviðaráðherra
Sveitarfélagið Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur hafa sent frá sér sameiginlega ályktun vegna ákvörðunar innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní nk.
Í ályktuninni harma sveitarfélögin og mótmæla harðlega þeirri ákvörðun og því fordæmi sem hún kann að skapa. Sveitarfélögin leggja áherslu á að þau hafi ávallt sýnt því fullan skilning að Baldur gegni hlutverki varaskips fyrir Herjólf þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða í slipp, líkt og samningar gera ráð fyrir. Sú staða er hins vegar ekki uppi í þessu tilviki þar sem Baldur er færður úr siglingum á Breiðafirði til að mæta aukinni eftirspurn eftir farþega- og ökutækjaflutningum til Vestmannaeyja.
Sveitarfélögin telja að ákvörðunin hafi veruleg áhrif á samgöngur, vöruflutninga, atvinnulíf og þjónustu við samfélögin við Breiðafjörð, ekki síst Flatey, og að hún beri vott um alvarlegt skeytingarleysi gagnvart þeim samfélögum sem reitt hafa sig á þjónustu ferjunnar og um árabil unnið að eflingu samgangna og byggðafestu á svæðinu.
Í ályktuninni er jafnframt ítrekað að mikilvægt sé að ekki verði vikið frá þeim samningsforsendum sem legið hafa til grundvallar notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf og að þær forsendur og þau mörk sem mótast hafa í samskiptum ríkisins og sveitarfélaganna við Breiðafjörð um hlutverk ferjunnar verði virt framvegis.
Ályktunina má lesa í heild sinni hér að neðan:
Ályktun vegna ákvörðunar innviðaráðuneytis um að færa Breiðafjarðarferjunar Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að styðja við aukna fólksflutninga til Vestmannaeyja
Sveitarfélagið Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur harma og mótmæla harðlega þeirri ákvörðun innviðaráðuneytisins og því fordæmi sem hún kann að skapa við að taka Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþegaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní næstkomandi. Nær enginn fyrirvari er gefinn áður en þessi ákvörðun kemur til framkvæmda og lítið sem ekkert samráð var haft við sveitarfélög og aðra hagaðila við Breiðafjörð við töku hennar, þar sem áhrif hennar á flutninga og þjónustu við Breiðafjörð voru ekki metin né brugðist við þeim af neinni alvöru.
Sveitarfélög við Breiðafjörð hafa haft skilning á því að Breiðafjarðarferjan Baldur sé varaskip fyrir Herjólf þegar hann er óstarfhæfur eða þarf að fara í slipp, líkt og samningar kveða á um. Sveitarfélögin við Breiðafjörð hafa ávallt sýnt því fullan skilning og samstöðu með íbúum Vestamannaeyja þegar slíkar aðstæður koma upp og munu gera áfram. Sú staða er hins vegar ekki uppi í þessu tilviki. Fyrstu dagana sem Baldur verður tekinn úr siglingum á Breiðafirði mun hann sigla samhliða Herjólfi til að mæta aukinni eftirspurn eftir farþega- og ökutækjaflutningum til Vestmannaeyja, meðal annars vegna íþróttaviðburða, samkvæmt upplýsingum sem fram hafa komið af hálfu innviðaráðuneytisins. Að mati sveitarfélaganna fellur slík ráðstöfun ekki að þeim forsendum sem legið hafa til grundvallar notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf.
Breiðafjarðarferjan Baldur gegnir lykilhlutverki í samgöngum milli Vestfjarða og Vesturlands og er lífæð Flateyjar. Ferjan þjónustar byggðir við Breiðafjörð og með henni fara mikilvægir flutningar á vörum, aðföngum og afurðum milli Vestfjarða og Vesturlands. Ferðaþjónustuaðilar á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Flatey treysta á öruggar og reglulegar siglingar yfir Breiðafjörð og áhrifa þessarar ákvörðunar mun gæta verulega nú í upphafi ferðamannatímabils með fyrirséðu tekjutapi. Flatey reiðir sig alfarið á Baldur þegar kemur að flutningum og samgöngum, enda fara allir flutningar á neysluvatni, vörum og sorpi með ferjunni. Grásleppuvertíð stendur nú yfir og er afla landað í Flatey, sem svo er fluttur með Baldri til Stykkishólms til vinnslu. Þá hefur Orkubú Vestfjarða undirbúið umfangsmiklar framkvæmdir í Flatey nú í júní við uppsetningu rafstöðvar og rafhlöðuvirkis sem ætlað er að draga verulega úr olíunotkun í eyjunni og styðja þannig við mikilvægt verkefni á sviði orkuskipta. Ljóst er að þær framkvæmdir munu óhjákvæmilega tefjast af þessum sökum. Farþegaskipið Særún, sem ráðuneytið áformar að muni sinna siglingum til Flateyjar á meðan Baldur siglir til Vestamanneyja, er hvorki hönnuð né hefur getu til stórflutninga á
vatni, vörum, afla og sorpgámum til og frá Flatey og getur því ekki komið í stað þeirrar þjónustu sem Baldur veitir samfélaginu í Flatey.
Afleiðingar þess að Baldur er færður úr siglingum um Breiðafjörð eru því verulegar og ljóst að ekki liggja fyrir fullnægjandi og raunhæfar viðbragðsáætlanir til þess að tryggja neysluvatnsöryggi Flateyjar, vöruflutninga og samgöngur yfir Breiðafjörð meðan á þessu ástandi stendur. Fyrir lá um nokkurt skeið að Herjólfur þyrfti að fara í vélaviðgerð, en þrátt fyrir það var ekkert formlegt samráð haft við sveitarfélög og aðra hagaðila við Breiðafjörð um hvernig mæta skyldi áhrifum þessarar ákvörðunar né lagðar fram raunhæfar lausnir til að tryggja viðunandi þjónustustig á svæðinu á meðan.
Þá vekur athygli að frumkvæði til að reyna að tryggja neysluvatnsöryggi í Flatey meðan á þessu stendur hefur komið frá Flateyingum sjálfum en ekki frá þeim stjórnvöldum sem ákvörðunina tóku. Sú ákvörðun að taka Baldur úr siglingum um Breiðafjörð í um heila viku til að auka farþega- og ökutækjaflutninga til Vestamanneyja tekur að mati sveitarfélaganna ekki nægilegt tillit til þeirra hagsmuna sem í húfi eru fyrir íbúa, atvinnulíf og byggðir við Breiðafjörð og á Vestfjörðum og ber vott um alvarlegt skeytingarleysi gagnvart þeim samfélögum sem reitt hafa sig á þjónustu ferjunnar og um árabil unnið að eflingu samgangna og byggðafestu á svæðinu. Betur hefði farið á því að nýta þann tíma sem fyrir hendi var til að undirbúa raunhæfar viðbragðsáætlanir í samráði við sveitarfélög og aðra hagaðila á svæðinu.
Þegar Baldur er færður til siglinga til Vestmannaeyja eru áhrifin á samfélögin við Breiðafjörð augljóslega veruleg og réttlætast aðeins af þeirri nauðsyn að tryggja samgöngur til Vestmannaeyja þegar Herjólfur er í slipp eða óstarfhæfur. Öðru máli gegnir þegar ferjan er nýtt til að mæta tímabundnu auknu álagi vegna viðburða eða annarrar eftirspurnar. Slík ráðstöfun hefur víðtæk áhrif á samgöngur, þjónustu og atvinnulíf við Breiðafjörð og fellur að mati sveitarfélaganna ekki að þeim forsendum sem legið hafa til grundvallar á notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf.
Sveitarfélögin ítreka því að mikilvægt er að innviðaráðuneytið og Vegagerðin staðfesti að ekki verði vikið frá þeim samningsforsendum sem legið hafa til grundvallar notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf, nema þegar Herjólfur er í slipp eða óstarfhæfur. Jafnframt telja sveitarfélögin mikilvægt að þær forsendur og þau mörk sem mótast hafa í samskiptum ríkisins og sveitarfélaganna við Breiðafjörð um hlutverk Baldurs verði virt framvegis og að öryggi, þjónusta og samgöngur samfélaganna við Breiðafjörð verði tryggð þegar nauðsyn krefur að færa Baldur úr siglingum á svæðinu.