Fara í efni

Taka á honum stóra sínum í Stykkishólmi

22.07.2026
Fréttir Lífið í bænum

Víkingurinn 2026, aflraunakeppni milli sterkustu manna landsins, fer fram dagana 24. - 26. júlí 2026 og fara tvær keppnisgreinar og verðlaunaafhending fram í Stykkishólmi.

Sunnudaginn 26. júlí taka kraftajötnar á honum stóra sínum fyrir utan Sjávarpakkhúsið og eru íbúar hvattir til að fjölmenna og styðja keppendur áfram. Að keppni lokinni verður verðlaunaafhending.

Dagskrá Víkingsins í heild sinni má sjá hér að neðan.

Föstudagur 24. júlí

Ólafsfjörður kl. 14:00: Mylluganga við Tjarnarborg

Siglufjörður kl. 16:00: Drumbalyfta við Kaffi Rauðku

Laugardagur 25. júlí

Blönduós kl. 11:00: Steinatök og réttstöðulyfta við Kvennaskólann

Ólafsvík kl. 18:00: Bóndaganga og kastað yfir vegg við Ólafsvíkurkirkju

Sunnudagur 26. júlí

Stykkishólmur kl. 13:00: Víkingapressa og blönduð grein við Sjávarpakkhúsið

Víkingurinn fór síðast fram í Stykkishólmi árið 2024
Getum við bætt efni síðunnar?