Fara í efni

Þrettándabrenna og friðarganga

02.01.2026
Fréttir

Á þrettándanum, þriðjudaginn 6. janúar, kl. 17:30, verður gengin friðarganga frá Hólmgarði að brennu við Vatnsás fyrir innan tjaldsvæði. Í Stykkishólmi er hefð fyrir friðargöngu á Þorláksmessu en sökum veðurs var göngunni frestað til þrettándans. Rafkertasala á vegum 9. bekkjar verður við upphaf friðargöngu í fjáröflunarskyni, kertið er selt á 1.600 kr.

Kveikt verður í þrettándabrennu í kjölfar göngu. Nemendur 7. bekkjar selja svo heitt súkkulaði við brennu, bollinn á 600 kr. Veitt verður viðurkenning fyrir best skreytta jólahúsið 2025 en nemendur 9. bekkjar sáu um valið. Fólk er hvatt til þess að rifja upp þrettándalögin vinsælu eða hafa söngtexta klára í símanum og taka undir.

Þrettándinn - Söngtextar

Þrettándagleði lýkur svo með flugeldasýningu á vegum Björgunarsveitarinnar Berserkja. Fjölmennum og kveðjum jólahátíðina saman.

Þrettándabrenna 2025
Getum við bætt efni síðunnar?