Tölum saman um líðan og tengsl
Barnaheill og Geðhjálp heimsækja Snæfellsnes mánudaginn 7. september. Opinn fundur verður haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar kl. 19:30 mánudaginn 7. september.
Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með efstu bekkjum grunnskóla um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Fundurinn fer fram á skólatíma og tekur um 2,5 klst. og lýkur með því að nemendum er boðið í pizzaveislu.
Sama kvöld verður haldinn fundur þar sem niðurstöðurnar verðar kynntar fyrir forráðamönnum og öðrum áhugasömum. Þangað bjóðum við nemendum, forráðamönnum, sveitarstjórnarfólki, starfsfólki félags- og velferðarmála, presta auk lögreglu. Á þeim fundi verða umræður um efnið og í lokin örtónleikar með Unnsteini Manuel.
Má segja að fyrirkomulagið sé blanda af ungmennaþingum Barnaheilla og Geðlest Geðhjálpar en bæði verkefnin hafa verið á ferðinni um landið síðastliðin misseri.
Fundur með nemendum (09:00 til 12:00)
Notast verður við borðafyrirkomulag og munu hópstjórar leiða vinnuna. Gert er ráð fyrir að skóli/félagsmiðstöð útvegi þrjá hópstjóra til að aðstoða við þessa vinnu. Hópstjórar skrá niður kjarnann í samtali hvers hóps. Fulltrúar Barnaheilla og Geðhjálpar munu setja viðkomandi vel inn í málin. Umræðuefni hvers borðs eru hér í viðhengi.
Áhersla er lögð á líðan, samskipti (heilbrigð og óheilbrigð) og jákvæða þætti sem mætti styrkja innan hvers samfélags.
Dagskrá
09:00 Stutt kynning á verkefninu og nemendum skipt í jafn stóra hópa
09:10 Vinna hefst og er hver hópur 15 til 20 mínútur á hverju borði
10:10 Hlé á vinnu
10:30 Framhald hópavinnu
11:30 Pizzaveisla í boði Barnaheilla og Geðhjálpar
12:00 Fundi lýkur
Kvöldfundur (19:30 til 21:00)
Um kvöldið er boðið til samtals í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar sem nemendur og/eða hópstjórar kynna ungmenni ásamt hópstjóra það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Í anda Geðlestarinnar endar dagskráin á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel. Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Áhersla lögð á að sveitarstjórnarfólk, starfsfólk velferðarmála svæðisins og lögregla mæti auk forsjáraðila.
Dagskrá
19:30 Geðhjálp/Barnaheill opna fundinn og fara yfir dagskrána
19:40 Hópstórar og/eða nemendur kynna niðurstöður hvers hóps
20:00 Samtal um niðurstöður
20:20 Jákvæð skilaboð fundarins – hvað er hægt að gera?
20:45 Unnsteinn Manuel
21:00 Fundi lýkur