Tvær íbúðir að Skúlagötu 9 lausar til útleigu
Sveitarfélagið Stykkishólmur hefur til leigu tvær íbúðir að Skúlagötu 9. Íbúðirnar eru báðar á fyrstu hæð en alls eru átta íbúðir í húsinu.
- Íbúð 101 er 81,9 fm að stærð og skiptist í gang, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stofu. Út af stofu eru svalir með fallegu útsýni yfir Maðkavíkina.
- Íbúð 103 er 82,4 fm að stærð og skiptist einnig í gang, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stofu. Út af stofu eru svalir með fallegu útsýni yfir Maðkavíkina.
Geymsla í kjallara fylgir báðum íbúðum.
Fyrirhugað er að selja eignir sveitarfélagsins í húsinu og eru íbúðirnar því leigðar með fyrirvara um hugsanlega sölu þeirra.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Steinsdóttir, fjármála- og skrifstofustjóri, í síma 433-8100 eða á gyda@stykkisholmur.is
Upplýsingar um húsaleigu má finna í gjaldskrá sveitarfélagsins.