Vaðlaugin lokuð vegna viðhalds - Lengri opnun á sunnudag
Vegna viðhaldsvinnu verður vaðlaugin lokuð frá föstudegi, 4. september, fram í næstu viku.
Sunnudaginn 6. september verður opnunartími lengri en vant er á sunnudögum, opið verður til kl. 18:30. Kvennaráð Mostra heldur Vesturlandsmót kvenna þann 6. september í Stykkishólmi. Gert er ráð fyrir um 50 þátttakendum á mótinu en opnunartími er framlengur í samráði við Mostra svo keppendur hafi kost á því að fara í sund að móti loknu.